Vilhjálmur fer fram á miskabætur
Vilhjálmur Bjarnason fv. þingmaður hefur höfðað miskabótamál gegn gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni fjárfesti og Birgi Má Ragnarssyni lögfræðingi og fjárfesti. Fyrirtaka í málinu er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur 18. nóvember næstkomandi.
Vilhjálmur höfðar málið vegna „ólögmætrar og saknæmrar meingerðar gegn friði, einkalífi og persónu hans, sem fólst í skipulögðum og leynilegum aðgerðum er stefndu létu framkvæma gegn stefnanda“.
Tilefnið er að í sjónvarpsþættinum Kveik frá apríl 2025 komst Vilhjálmur að því að menn fylgdust með honum með skipulegum hætti. Til þess hafi stefndu, Björgólfur Thor og Birgir Már, fengið fyrirtækið PPP. Þetta virðist vera viðurkennt af þeim stefndu. Björgólfur hafi óskað eftir athugun árið 2012 og Birgir hafi haft milligöngu gagnvart PPP. Því er hins vegar mótmælt sem ósönnuðu að aðgerðir PPP hafi haft þær afleiðingar sem stefnandi lýsir.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗