Mörður Árnason er látinn

Mörður Árnason, fyrrum þingmaður, er látinn 73 ára að aldri. Mörður lést í gærmorgun á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eftir erfið veikindi síðustu tvo mánuði, en hann hafði barist við krabbamein síðustu tólf ár.

Morgunblaðið greinir frá.

Eftirlifandi eiginkona hans er Linda Vilhjálmsdóttir, skáld og sjúkraliði. Dóttir hans er Ölrún Marðardóttir og átti hann þrjú barnabörn og þrjú barnabarnabörn. Foreldrar Marðar voru Árni Björnsson og Vilborg Harðardóttir sem lést árið 2002. 

Mörður fæddist í Reykjavík 30. október 1953 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973. Hann útskrifaðist með BA í íslensku og málvísindum frá HÍ og Háskólanum í Ósló árið 1978 og stundaði framhaldsnám í málvísindum í Sorbonne í París á árunum 1978-1981.

Hann var starfsmaður Orðabókar Háskólans á árunum 1981–1984 og síðar blaðamaður og ritstjóri Þjóðviljans. Mörður var upplýsingafulltrúa Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra árin 1989–1991. Mörður fór fyrst inn á þing í nóvember árið 1995 sem varaþingmaður fyrir Þjóðvaka og síðar fyrir Samfylkinguna. Var hann kjörinn á þing sem alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður fyrir Samfylkinguna árið 2003 og sat á þingi til ársins 2007 og aftur á árunum 2010 til 2013. Þá var hann varaþingmaður fyrir Samfylkinguna árin 2014-2015. Mörður átti sæti í menntamálanefnd, samgöngunefnd, utanríkismálanefnd og umhverfisnefnd þar sem hann var formaður á árunum 2010–2011.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅