Lisa, 13 ára, hvarf á leið í skólann – Fimm daga leit endaði með hryllingi

Þýsk yfirvöld hafa greint frá nýjum upplýsingum í rannsókn á hvarfi og dauða 13 ára stúlku í Berlín. Stúlkan, sem hét Lisa, hvarf á leið í skólann þriðjudaginn 3. nóvember síðastliðinn og fannst fimm dögum síðar látin í yfirgefnu húsi, um 50 kílómetra frá heimili sínu.

Nú hefur komið í ljós að 22 ára karlmaður, sem grunaður er um að hafa rænt stúlkunni og myrt hana, hafði verið til rannsóknar vegna gruns um kaup og vörslu barnaníðsefnis löngu áður en Lisa hvarf.

Þýski fjölmiðillinn Bild greinir ítarlega frá málinu.

Yfir 900 skrár fundust við húsleit

Rannsókn á manninum hófst í janúar 2025 eftir að þýsk yfirvöld höfðu rakið greiðslur til alræmdrar dreifingarveitu barnaníðsefnis á myrkravefnum. Umrædd veita var ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum áður en alþjóðleg lögregluaðgerð leiddi til þess að henni var lokað vorið 2025.

Þann 10. mars 2025 gerði lögregla húsleit á heimili mannsins samkvæmt dómsúrskurði. Þar var lagt hald á harða diska sem sagðir eru hafa innihaldið yfir 900 skrár með efni sem grunur leikur á að sé ólöglegt. Maðurinn er talinn hafa aflað sér efnisins árið 2023.

Maðurinn hafði ekki verið sakfelldur vegna málsins.

Þann 28. apríl á þessu ári tók saksóknaraembættið í Berlín jafnframt við öðru máli gegn honum frá saksóknurum í Passau. Það mál snerist einnig um grun um kaup og vörslu barnaníðsefnis.

Fannst bundin í yfirgefnu húsi

Lisa bjó ásamt fjölskyldu sinni í Marzahn-hverfinu í Berlín. Hún hvarf þriðjudaginn 3. nóvember þegar hún var á leið í skólann.

Leit að henni stóð yfir næstu daga en á sunnudag, 8. nóvember, fannst lík hennar í yfirgefnu húsi í Altglietzen, rúmlega 50 kílómetra frá heimili hennar.

Stúlkan var bundin þegar hún fannst og talið er að hún hafi þá verið látin í einhverja daga. Réttarrannsókn staðfesti að um Lisu væri að ræða en krufning leiddi ekki í ljós með óyggjandi hætti hvað varð henni að bana.

Samkvæmt saksóknaraembættinu í Berlín hefur ekkert komið fram við rannsóknina sem bendir til þess að Lisa og hinn grunaði hafi þekkst áður. Því er talið mögulegt að hún hafi orðið fyrir valinu af handahófi.

Engar vísbendingar hafa heldur komið fram um að fleiri hafi tekið þátt í verknaðinum.

Reyndi að svipta sig lífi

Þegar lögreglumenn komu að húsinu þar sem lík Lisu fannst er 22 ára maðurinn sagður hafa reynt að svipta sig lífi með skotvopni.

Hann hlaut lífshættulega áverka og var fluttur á sjúkrahús þar sem hann hefur verið undir eftirliti lögreglu. Samkvæmt upplýsingum Bild á mánudagskvöld var óvíst hvort hann myndi lifa af.

Morðrannsóknardeild lögreglunnar vinnur nú að því að kortleggja síðustu daga Lisu og komast að því hvað gerðist frá því að hún hvarf á leið í skólann þar til lík hennar fannst.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅