Strákarnir okkar komnir saman á Spáni - Fljúga til Búlgaríu í dag

Íslenska karlalandsliðið er komið saman til undirbúnings og æfinga fyrir komandi leik í Þjóðadeildinni gegn Búlgaríu. Fyrsta æfing fór fram á Spáni í gær og fer liðið yfir til Búlgaríu í dag.

Liðin mætast í Plovdiv á föstudag og leikurinn hefst kl. 19:45 að íslenskum tíma. 

Fyrir síðustu tvo leikina í riðlinum, sem er liður í C-deild Þjóðadeildarinnar, er íslenska liðið efst með 8 stig eftir fjóra leiki og þar á eftir kemur Eistland með 6 stig. Búlgaría er með 4 stig og Lúxemborg rekur lestina með þrjú stig.

Ísland mætir Lúxemborg svo í lokaleik riðilsins á mánudag hér heima. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅