Þetta er bara mitt innra ríki

Bragi Ólafsson segir að tilgangurinn með Innanríkisbókum sínum sé að benda á aðrar bækur.

Fyrir tveimur árum hóf tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Bragi Ólafsson ferðalag um sinn innri heim og ævi sína og gaf út bókina Innanríkið – Alexíus sem fékk mjög góða dóma. Í síðustu viku kom út nýtt bindi í Innanríkisröðinni, Innanríkið – Aðfangadagar, þar sem hann heldur ferðalaginu áfram.

Innanríkið – Alexíus var persónuleg frásögn af æsku Braga og fólkinu í kringum hann og minningar frá seinni árum, en í flestu ólík því sem kalla má hefðbundnar minningabækur eða ævisögur.

Innanríkið – Aðfangadagar er áþekk að mörgu leyti, en framvindan jafnvel snúnari. Aðspurður á hvaða leið hann sé með bækurnar svarar Bragi því til að þegar hann hóf skrifin á fyrstu bókinni í Innnríkisbálknum hafi legið fyrir að hann myndi ekkert leggja sérstaka áherslu á framvindu heldur það að láta allt mætast í hverri bók fyrir sig þó að það yrði alltaf einhver rammi utan um hverja bók, „en á hvaða leið ég er, í rauninni er ég á leiðinni til Benidorm af því að næsta bók mun heita Frá Almería til Benidorm og þar er ramminn ferðalag frá Almería til Benidorm sem ég fór fyrir 42 árum í puttaferðalag og sem ég endurtók í rútu á síðasta ári. En nú er ég kominn fram úr mér, ég er farinn að ræða næstu bók.“

Fáðu aðgang að þessari grein

Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.

Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.

Tryggðu þér aðgang núna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅