Fjölskylda Kennedys höfðar mál vegna sigurbogans
Fjölskylda Johns F. Kennedys, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, hefur höfðað mál til að stöðva byggingu sigurboga sem Donald Trump forseti hyggst reisa í höfuðborg landsins.
Níu fjölskyldumeðlimir þessarar stjórnmálaættar halda því fram að mannvirkið, sem á að vera 76 metra hátt, myndi skyggja á útsýnið að gröf Kennedys, sem og að gröfum þúsunda uppgjafahermanna sem hvíla í Arlington-þjóðarkirkjugarðinum í Virginíu, að því er BBC greindi frá.
Í síðustu viku stöðvaði bandarískur dómari framkvæmdirnar tímabundið í kjölfar atkvæðagreiðslu sem heimilaði að framkvæmdir héldu áfram.
Hvíta húsið sagði það „miður“ að sjá að sumir úr Kennedy-fjölskyldunni hefðu gerst aðilar að málaferlum gegn boga sem „ætlað er að heiðra hetjur okkar sem hvíla í Arlington-kirkjugarðinum“.
„Það á ekki að misnota dómskerfið til að gera pólitískt mál úr mannvirki sem ætlað er að sameina þjóð okkar,“ sagði Davis R. Ingle, talsmaður Hvíta hússins, í yfirlýsingu til BBC.
„Við munum halda áfram að færa rök fyrir þessu fallega og viðeigandi minnismerki og erum þess fullviss að við munum fá fulla uppreist æru eftir því sem málaferlunum vindur fram,“ bætti hann við.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗