Emery vill leikmann Chelsea
Aston Villa hefur áhuga á Romeo Lavia, miðjumanni Chelsea, og gæti reynt að fá hann í janúarglugganum.
Unai Emery, stjóri Villa, er sagður vilja styrkja miðsvæðið í janúar, ekki síst vegna meiðsla Amadou Onana.
Lavia gekk í raðir Chelsea frá Southampton árið 2023 en hefur glímt töluvert við meiðsli og ekki tekist að festa sig í sessi á Stamford Bridge.
Chelsea vill helst halda Lavia og ku hann vera sáttur hjá félaginu. Tilboð upp á meira en 30 milljónir punda gæti þó freistað Lundúnafélagsins og það gæti heillað kappann að fá meiri spiltíma, sér í lagi hjá liði í Meistaradeild Evrópu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗