Bakaði heima í sex ár áður en lífið umturnaðist

Bakaríið Saison var opnað 11. júlí síðastliðinn í Bedford-Stuyvesant-hverfinu í Brooklyn í New York. Samsett mynd/Skjáskot Instagram

Samantha Rees byrjaði að baka heima í heimsfaraldrinum til að halda höndunum uppteknum og gleðja aðra með heimabökuðu góðgæti. Sex árum síðar opnaði hún sitt fyrsta bakarí í Brooklyn. Hún er sjálflærð og segist aldrei hafa unnið jafnmikið á ævinni. Þetta kemur fram í Vogue.

Bakaríið Saison var opnað 11. júlí síðastliðinn í Bedford-Stuyvesant-hverfinu í Brooklyn í New York. Í persónulegri grein í Vogue, segir Rees frá því hvernig baksturinn færðist úr íbúðinni hennar yfir í eigið bakarí, með öllum þeim gleðistundum og óvæntu vandamálum sem fylgdu.

„Ég var hvorki með viðskiptaáætlun né sérstakt markmið, en mér fannst þetta rétt,“ skrifar hún um upphafið.

Fljótlega fór baksturinn að eiga hug hennar allan. Hún vaknaði spennt að komast inn í eldhús og hugsaði stöðugt um hvað hana langaði að prófa næst.

Treysti eigin tilfinningu

Rees segir ákveðið frelsi felast í því að vera sjálflærð. Þar sem hún viti ekki alltaf hvernig hlutirnir eigi að vera gerðir fylgi hún gjarnan eigin tilfinningu. Því hafi þó lengi fylgt efasemdir um hvort hún væri starfinu vaxin.

Fólk með reynslu af veitingarekstri spurði hana stundum hvort hún vissi í raun hvað hún væri að fara út í.

„Heiðarlega svarið var alltaf: Líklega ekki.“

Að hennar mati getur enginn vitað að fullu hvað bíður þegar slíkt skref er tekið. Á einhverjum tímapunkti verði maður einfaldlega að treysta sér og láta til skarar skríða.

Kökurnar sem fylgdu henni að heiman

Rees vildi að bakaríið yrði eins konar framhald af heimili sínu. Hún fékk vini sína, hönnuðina Beatrice Tait-Loft og Nathan Német hjá Studio N&TL, til liðs við sig. Þau voru byrjuð að ræða innréttingarnar áður en húsnæði fannst.

Úr varð hlýlegt rými með stórum gluggum, blómum og gömlum munum sem Rees hafði safnað í gegnum árin.

Á borðinu eru meðal annars múffur með kanilsykri, smjörríkar skonsur með heimagerðri sultu, mjölslaus súkkulaðikaka og kaka með steinávöxtum og möndlukremi. Ólífuolíukaka með kremi úr mascarponeosti er einn af einkennisréttum bakarísins.

Þetta er baksturinn sem hafði fylgt Rees árum saman, í matarboð, afmæli og brúðkaup. Úrvalið breytist síðan með árstíðunum.

Smjörið búið og vaskurinn lekur

Í frásögninni lýsir Rees einnig samstarfinu í eldhúsinu, þar sem sjö konur með ólíkan bakgrunn hafa lært að vinna saman. Þær reyna að minna hver aðra á að misheppnaður bakstur sé ekki persónulegur ósigur og að stundum sé best að geta hlegið þegar eitthvað fer úrskeiðis.

Dagarnir eru þó langt frá því að vera áfallalausir. Smjörið klárast, skonsurnar bakast ekki rétt, nettengingin bilar eða vaskurinn fer að leka.

„Ef ég hef lært eitthvað frá því ég opnaði bakaríið er það að besta leiðin til að undirbúa daginn er að búa sig undir hið óvænta,“ skrifar Rees. „Vertu tilbúin að taka óreiðunni opnum örmum og, kannski mikilvægast af öllu, ekki berjast gegn henni.“

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅