Hálka lék ökumann grátt við Holtagarða
„Þessi hefur ekki alveg náð beygjunni,“ segir yfir myndskeiði af bílnum við Holtagarða. Samsett mynd/TikTok
Hálka við Holtagarða virðist hafa leikið ökumann grátt á dögunum. Bíll hafði runnið út af veginum og stöðvast með framendann langleiðina inni í bílakjallara verslunarmiðstöðvarinnar á heldur óhefðbundnum stað.
TikTok-notandinn Atlaz20 birti nýverið myndskeið þar sem sjá má bílinn í þessari óvenjulegu stöðu.
„Þessi hefur ekki alveg náð beygjunni,“ segir í texta yfir myndskeiðinu. Miðað við hvar bíllinn endaði er óhætt að taka undir þau orð.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗