Handtekinn í tengslum við peningaþvætti

Lögreglan að störfum.

Lögreglan sem annast verkefni í Hafnarfirði og Garðabæ kærði tvo ökumenn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og fyrir að aka sviptir ökuréttindum.

Einn ökumaður til viðbótar var kærður fyrir sömu brot en einnig var hann vistaður í fangageymslu vegna rannsóknar á sölu fíkniefna, peningaþvætti og fleiru.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefna frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í morgun. 

Handtekinn vegna líkamsárásar

Lögreglan á Hverfisgötu í Reykjavík hafði afskipti af einstaklingi vegna líkamsárásar.

Hún kærði einnig fjóra ökumenn fyrir hin ýmsu umferðarlagabrot. Sá fimmti var kærður fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna.

Lögreglan í Kópavogi og Breiðholti stöðvaði ökumann sem fór yfir á rauðu ljósi og handtók annan fyrir að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna.

Byggingarefni stolið

Einn var vistaður í fangelsi vegna rannsóknar á heimilisofbeldi.

Þá barst lögreglunni á Vínlandsleið tilkynning um þjófnað á byggingarefni.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅