Morðin sem skóku Texas: Umdeildur milljónamæringur látinn 93 ára
Bandaríski milljónamæringurinn T. Cullen Davis, sem var á sínum tíma sakaður um að hafa myrt 12 ára stjúpdóttur sína og elskhuga eiginkonu sinnar, er látinn, 93 ára að aldri.
Davis var sýknaður af morðákærunni í einu umtalaðasta sakamáli Texas á áttunda áratug síðustu aldar.
Davis, sem auðgaðist í olíuiðnaðinum, lést á heimili sínu í Colleyville í Texas síðastliðinn föstudag, að því er bandaríski miðillinn People greinir frá.
Málið vakti gríðarlega athygli í ágúst 1976 þegar tveir einstaklingar voru skotnir til bana í glæsihýsi Davis í Fort Worth. Fórnarlömbin voru Andrea Willborn, 12 ára stjúpdóttir hans, og Stan Farr, þrítugur elskhugi eiginkonu hans, Priscillu Childers, sem hann var þá að skilja við.
Priscilla og annar maður særðust einnig í árásinni en lifðu af.
Saksóknarar héldu því fram að Davis hefði brotist inn í húsið, þar sem eiginkona hans bjó enn, og setið fyrir henni. Árásarmaðurinn var sagður hafa verið svartklæddur.
Davis neitaði sök og var að lokum sýknaður eftir réttarhöld þar sem framburður vitna gegndi lykilhlutverki.
Síðar var hann einnig ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um að myrða dómarann sem fór með skilnaðarmál hans. Kviðdómur komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu og málinu lauk án sakfellingar.
Davis hélt alla tíð fram sakleysi sínu.
Fjölskylda hinnar tólf ára Andreu hefur hins vegar aldrei sætt sig við niðurstöðuna. Eldri systir hennar, Dee Davis, sagði í viðtali við sjónvarpsþáttinn 48 Hours árið 2018 að réttlætinu hefði aldrei verið fullnægt.
„Ég vona að þið hættið aldrei að tala um þetta. Um leið og þið hættið að tala um málið er því lokið,“ sagði hún.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗