Var með 150.000 krónur í mánaðarlaun
„Ég var búinn að samþykkja samning frá Chekhovskie Medvedi í Rússlandi og var á leiðinni þangað,“ sagði handbolta- og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson í Dagmálum.
Bjarki, sem er 36 ára gamall, gekk til liðs við franska stórliðið París SG í sumar eftir fjögur ár í herbúðum ungverska stórliðsins Veszprém þar sem hann varð fjórum sinnum meistari og þrívegis bikarmeistari.
Allt á leiðinni til fjandans
Bjarki gekk til liðs við Eisenach í Þýskalandi árið 2013 en hann var nálægt því að fara til Rússlands sama ár.
„Þeir buðu mér góðan samning en svo hætti ég að heyra í umboðsmanninum mínum,“ sagði Bjarki.
„Þá var allt á leiðinni til fjandans hjá þeim, fjárhagslega séð. Ég var staðráðinn í að fara út því mér fannst ég búinn með íslensku deildina og ég ætlaði út en það var bara ekki að gerast. Ég ákvað að fara í FH en sem á þeim forsendum að ég megi fara út fyrir 1. ágúst.
Ég var aðeins búinn að heyra í Alla Eyjólfs [Aðalsteinn Eyjólfsson] líka sem var þjálfari Eisenach. Þeir gátu boðið mér hörmulegan samning, á þeim forsendum að þeir færu upp í efstu deild,“ sagði Bjarki og hélt áfram.
Byrjaði á botninum
„Hann hringir svo í mig 29. júlí og tjáir mér að þetta sé klárt. „Geturðu komið út á morgun?“ segir hann við mig og ég fer beint heim og pakka í tösku.
Ég fékk bíl og íbúð sem var grunnurinn fyrir því að geta lifað af og svo var þetta bara vasapeningur, einhver 150.000 krónur á mánuði. Það var bensínstyrkur en ég fékk þennan pening til þess að lifa á.
150.000 krónur var ekki alveg sami peningur þá og hann er í dag en ég byrjaði á botninum,“ sagði Bjarki Már meðal annars.
Viðtalið við Bjarka í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗