Var með 150.000 krónur í mánaðarlaun

„Ég var búinn að samþykkja samning frá Chekhovskie Medvedi í Rússlandi og var á leiðinni þangað,“ sagði handbolta- og landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson í Dagmálum.

Bjarki, sem er 36 ára gamall, gekk til liðs við franska stórliðið París SG í sumar eftir fjögur ár í herbúðum ungverska stórliðsins Veszprém þar sem hann varð fjórum sinnum meistari og þrívegis bikarmeistari.

Allt á leiðinni til fjandans

Bjarki gekk til liðs við Eisenach í Þýskalandi árið 2013 en hann var nálægt því að fara til Rússlands sama ár.

„Þeir buðu mér góðan samning en svo hætti ég að heyra í umboðsmanninum mínum,“ sagði Bjarki.

„Þá var allt á leiðinni til fjandans hjá þeim, fjárhagslega séð. Ég var staðráðinn í að fara út því mér fannst ég búinn með íslensku deildina og ég ætlaði út en það var bara ekki að gerast. Ég ákvað að fara í FH en sem á þeim forsendum að ég megi fara út fyrir 1. ágúst.

Ég var aðeins búinn að heyra í Alla Eyjólfs [Aðalsteinn Eyjólfsson] líka sem var þjálfari Eisenach. Þeir gátu boðið mér hörmulegan samning, á þeim forsendum að þeir færu upp í efstu deild,“ sagði Bjarki og hélt áfram. 

Byrjaði á botninum

„Hann hringir svo í mig 29. júlí og tjáir mér að þetta sé klárt. „Geturðu komið út á morgun?“ segir hann við mig og ég fer beint heim og pakka í tösku.

Ég fékk bíl og íbúð sem var grunnurinn fyrir því að geta lifað af og svo var þetta bara vasapeningur, einhver 150.000 krónur á mánuði. Það var bensínstyrkur en ég fékk þennan pening til þess að lifa á.

150.000 krónur var ekki alveg sami peningur þá og hann er í dag en ég byrjaði á botninum,“ sagði Bjarki Már meðal annars.

Viðtalið við Bjarka í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.

Bjarki Már Elísson ásamt Guðjóni Val Sigurðsson eftir leik með Eisenach gegn Kiel árið 2013. Ljósmynd/@bjarkimar90

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅