„Engin skilaboð falin í því“
Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur að samtöl sín um rekstrarmál við stjórn Landsvirkjunar án forstjórans í janúar hafi verið innan marka hins leyfilega, þar sem hann hafi aðeins verið að óska upplýsinga.
„Ég var að óska eftir upplýsingum um stöðu þessara mála. Það voru engin skilaboð falin í því,“ sagði hann í viðtali við Morgunblaðið að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Málin vörðuðu lokagreiðslu vegna sölu Landsnets og deilur fyrirtækjanna.
Hann svaraði ekki spurningu um hvort það hefðu verið mistök, en vísaði til þess að slíkt hefði tíðkast án þess að athugasemdir væru gerðar við það.
Daði Már ver jafnframt óformlega forfundi stjórnar Landsvirkjunar án forstjórans, sem efast hefur verið um að standist lög og reglur, og segir slíka fundi tíðkast hjá öðrum ríkisfyrirtækjum. Beðinn um dæmi nefnir hann aðeins Arion banka, sem er ekki í ríkiseigu, en treystir sér hins vegar ekki til að nefna ríkisfyrirtæki. Hann treystir stjórn Landsvirkjunar áfram til að ráða nýjan forstjóra.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗