66°Norður opnar búðir í Kína
Sjóklæðagerðin, sem rekur útivistarmerkið 66°Norður, hefur gert stóran samning við kínverska fatafyrirtækið HLA Group. Í samtali við Morgunblaðið lýsir Helgi Rúnar Óskarsson forstjóri viðskiptunum sem miklum tímamótum.
HLA er eitt stærsta fatamerki Kína og rekur yfir 7.000 verslanir. Samningurinn gengur út á stofnun samstarfsfélags sem mun annast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína.
Til stendur að opna fyrstu 66°Norður-verslunina í Kína í september 2027. „Það verður flaggskipsverslun í Beijing,“ segir Helgi.
Samkvæmt samningnum mun samstarfsfélagið kaupa vörubirgðir af Sjóklæðagerðinni. Jafnframt hefur verið samið um sölu hugverkaréttinda sem tengjast sölu og dreifingu á vörum 66°Norður í Kína. Greitt verður fyrir réttindin með reiðufé sem mun bæta lausafjárstöðu Sjóklæðagerðarinnar verulega og styrkja fjárhagsstöðu hennar en afkoma fyrirtækisins hefur verið neikvæð undanfarin tvö ár vegna mikilla fjárfestinga í uppbyggingu á alþjóðamarkaði.
Helgi ræðir samninginn og reksturinn almennt í ítarlegu viðtali í blaðinu í dag en hann segir að fyrirtækið hafi mætt mótlæti í Bretlandi og þurft að afskrifa fé.
Frábærlega gangi hins vegar í Danmörku þar sem búið er færa verslunina um set. Sala í Þýskalandi sé sömuleiðis á uppleið.
Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗