Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út.

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út. Kort/Veðurstofa Íslands

Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á Austfjörðum og Suðausturlandi vegna norðan hvassviðris eða storms.

Á Austfjörðum tók viðvörunin gildi klukkan 5 í morgun en á Suðausturlandi tekur hún gildi klukkan 9.

Þar verða norðvestan 15-23 metrar á sekúndu og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Varasamt ferðaveður, einkum fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Fram kemur í athugasemd veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands að hvassir norðvestan vindstrengir verði á Austfjörðum undir Vatnajökli í dag.

Veðurspáin fyrir landið er annars þannig að spáð er norðvestan 13-23 m/s austanlands í dag, annars verður mun hægari vindur. Dálítil él verða norðaustantil, en lengst af léttskýjað á Suður- og Vesturlandi. Frost verður á bilinu 0 til 7 stig. Dregur úr vindi í kvöld.

Suðvestan 5-13 m/s og fer að snjóa á morgun, en slydda eða rigning á láglendi síðdegis og hiti 0 til 5 stig. Hægari vindur á austanverðu landinu, þurrt og kalt, en dálítil snjókoma seint á morgun.

Veðurvefur mbl.is

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅