Andlát: Mörður Árnason
Mörður Árnason íslenskufræðingur lést í gærmorgun, 10. nóvember, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, eftir erfið veikindi undanfarna tvo mánuði. Hann var 73 ára að aldri og hafði barist við krabbamein síðustu tólf ár, en lét sjúkdóminn aldrei aftra sér frá störfum og vann mikið og fylgdist vel með þjóðfélagsmálum.
Mörður var fæddur í Reykjavík 30. október 1953, elsta barn hjónanna Árna Björnssonar, fræðimanns og rithöfundar, og Vilborgar Harðardóttur, varaþingsmanns og blaðamanns. Yngri systur hans eru Ilmur, f. 1958, Dögg, f. 1964 og Embla Ýr Bárudóttir f.1973.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1973 og lauk BA prófi í íslensku og málvísindum frá Háskóla Íslands og háskólanum í Osló. Hann var í framhaldsnámi í málvísindum í Sorbonne háskóla í París 1979-1981.
Mörður starfaði við margvísleg störf á ferlinum. Hann var starfsmaður Orðabókar Háskólans; blaðamaður á Þjóðviljanum og ritstjóri blaðsins 1988-1989. Þá var hann upplýsingafulltrúi fjármálaráðherra 1989-1991 og ritstjóri við Bókaútgáfu Máls og menningar og Eddu-útgáfu hf. 1991-2003.
Hann var starfsmaður Samfylkingarinnar og sjálfstætt starfandi íslenskufræðingur og stjórnmálamaður á Reykjavíkurakademíunni. Hann var alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður 2003-2007 og Reykjavíkurkjördæmis norður 2010-2013 fyrir Samfylkinguna. Hann var varaþingmaður Reykvíkinga 2014-2015 fyrir Samfylkinguna.
Í stjórnmálastarfinu sat Mörður í ýmsum nefndum eins og Menntamálanefnd frá 2003-2007 og aftur 2010; í umhverfisnefnd 2003-2007 og 2010-2011 og þá sem formaður nefndarinnar. Hann var í viðskiptanefnd 2010 og í umhverfis- og samgöngunefnd 2011-2013 og í utanríkismálanefnd 2011-2013. Mörður sat lengi í útvarpsráði, síðar stjórn RÚV. Þá var hann í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2011-2013.
Eftirlifandi eiginkona Marðar er Linda Vilhjálmsdóttir skáld og sjúkraliði. Dóttir hans er Ölrún Marðardóttir, og barnabörnin eru þrjú og barnabarnabörnin þrjú.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗