Skattaleg meðferð sé samkeppnishæf

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/Eyþór

„Ég tek undir það að fyrirsjáanleiki og samkeppnishæft skattaumhverfi eru grundvallarforsendur þess að við getum haldið áfram að vaxa og dafna, m.a. með því að laða til landsins fjárfestingar. Stóru málin eru þau að stjórnkerfið sé skilvirkt, tímafrestir séu virtir, fyrirsjáanleiki sé fyrir hendi og síðan þarf fjárfestingaumhverfið, þ.m.t. skattaleg meðferð rekstrar, að vera samkeppnishæft,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Morgunblaðið.

Leitað var viðbragða hans við því mati Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Sveitarfélagsins Ölfuss, að innlendir og erlendir fjárfestar væru hikandi við að ráðast í fjárfestingar í Ölfusi vegna óvissu um skatta- og rekstrarlegt umhverfi fyrirtækja til næstu framtíðar.

„Þetta eru sjónarmið sem við höfum heyrt áður frá aðildarfélögum okkar. Þess er skemmst að minnast að á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í byrjun október sl. kom fram í máli Rannveigar Rist, sem hefur áratuga reynslu af rekstri orkufreks iðnaðar, að alþjóðlegir fjárfestar sem eru að íhuga að fjárfesta á Íslandi ræða við þá sem eru á fleti fyrir. Ef svörin sem þeir fá frá þeim sem eru með starfsemi hér eru þau að skattaumhverfið sé óskýrt og geti breyst með skömmum fyrirvara og langan tíma geti tekið að fá leyfisumsóknir afgreiddar og ekki sé í forgangi hjá stjórnvöldum að skapa jákvæð skilyrði fyrir útflutningsgreinar, þá hefur það að sjálfsögðu mjög mikil áhrif á vilja manna til að fjárfesta,“ segir Bjarni.

„Við þekkjum það í gagnaveraiðnaðinum t.d. að stór álitamál varðandi skattalegt umhverfi þeirrar starfsemi hafa verið óafgreidd of lengi. Við þekkjum sömuleiðis dæmi úr orkuiðnaðinum um að leyfisumsóknir hafi verið mörg ár í meðferð, þannig að ég tek heilshugar undir þær raddir sem segja að samkeppnishæfni og fyrirsjáanleiki séu grundvallaratriði fyrir okkur ef við viljum auka erlenda fjárfestingu og það er þörf á því að auka hana á Íslandi,“ segir hann og nefnir að í alþjóðlegum samanburði sé erlend fjárfesting lítil hér á landi og mjög lítil í samanburði við lönd OECD.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅