Afskaplega smekkleg íbúð á Seltjarnarnesi

Stofan er björt og íslensk list prýðir veggina.

Stofan er björt og íslensk list prýðir veggina. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Við Miðbraut á Seltjarnarnesi er einstaklega björt og glæsileg íbúð með sjávarútsýni til sölu í húsi byggðu árið 1961. Eignin er alls 197 fm að meðtöldum tveimur bílskúrum sem hefur að hluta verið breytt í stúdíóíbúð. Núverandi eigendur hafa gert íbúðina einstaklega smekklega og prýtt hana íslenskum listaverkum.

Íbúðin er innréttuð á minimalískan og smekklegan hátt. Gólf eru flotuð og aðalíbúðin er opin, björt og með stórum gluggum. 

Eldhúsið er rúmgott með vandaðri innréttingu, granítborðplötum og innbyggðum tækjum. Það tengist borðstofu og stofu þar sem stórir gluggar ramma inn fallegt útsýni yfir hafið. Úr stofunni er gengið út á norðvestursvalir þar sem hægt er að njóta síðdegissólarinnar og sjávarútsýnisins.

Svefnherbergin eru tvö, bæði rúmgóð, og er útgengt á svalirnar úr hjónaherberginu. Baðherbergið er sömuleiðis stórt með frístandandi baðkari, bláflísalagðri sturtu og vönduðum innréttingum. Inn af því er fataherbergi með þvottaaðstöðu. Upphaflega voru þrjú svefnherbergi í íbúðinni og er möguleiki á að breyta skipulaginu aftur.

Það sem gerir eignina áhugaverða er stúdíóíbúð sem útbúin hefur verið í stærstum hluta tveggja samliggjandi bílskúra á lóðinni. Rýmið býður upp á ýmsa möguleika, hvort sem er sem vinnustofa, aðstaða fyrir fjölskyldumeðlimi eða til útleigu. Hluti bílskúranna er áfram nýttur sem geymsla.

Sjá á fasteignavef mbl.is: Miðbraut 24

Gólf eru flotuð sem er yfirleitt mjög smekklegt.

Gólf eru flotuð sem er yfirleitt mjög smekklegt. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Úr stofunni er opið í borðstofu og eldhús.

Úr stofunni er opið í borðstofu og eldhús. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Eldhúsið er bjart með hvítri innréttingu og hringborði úr eik.

Eldhúsið er bjart með hvítri innréttingu og hringborði úr eik. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Bláflísalagða sturtan er æðisleg.

Bláflísalagða sturtan er æðisleg. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

Tvö svefnherbergi eru í aðalíbúðinni en þau voru áður þrjú.

Tvö svefnherbergi eru í aðalíbúðinni en þau voru áður þrjú. Ljósmynd/Fasteignavefur mbl.is

内容来自 Mbl.is - Smartland - Heimili og hönnun,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅