María Rut Kristinsdóttir skrifar: Aðhald eða skemmdarverk?
Það er eitt að veita stjórnvöldum aðhald. Það er annað að gera allt sem í manns valdi stendur til að torvelda störf þeirra. Svo gerist það stundum að pólitískur ásetningur virðist snúast minna um að hafa áhrif á ákvarðanir og meira um að koma í veg fyrir að þær geti yfir höfuð gengið upp. Það er að mínu mati slæm þróun.
Fréttir af því að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sent ríflega 300 fyrirspurnir til ráðuneyta í einu kasti vekja upp áleitnar spurninga. Auðvitað er það réttur þingmanna að kalla eftir upplýsingum. Það er ekki bara réttur þeirra heldur mikilvægur hluti af eftirlitshlutverki Alþingis. Ég hef að sjálfsögðu enga þolinmæði fyrir því að stjórnvöld komist hjá því að svara eðlilegum og málefnalegum spurningum.
En öllu valdi fylgir ábyrgð. Líka hjá minnihlutaþingmönnum.
Gervigreind og tímaþjófnaður
Þegar hundruðum fyrirspurna er beint til ráðuneyta á skömmum tíma verður að spyrja hvort tilgangurinn sé fyrst og fremst að afla upplýsinga eða hvort verið sé að leggja stjórnsýslunni verkefni á herðar sem ætlað er að hægja á öðrum störfum hennar. Það er ekki sama hvort verið er að spyrja til að upplýsa eða spyrja til að tefja.
Þessi gjörningur verður enn áhugaverðari í ljósi tæknibreytinga. Gervigreindin hefur gert þingmönnum auðveldara en áður að framleiða mikið magn fyrirspurna, tillagna og annarra gagna. Það sem áður hefði tekið daga, vikur eða jafnvel mánuði getur nú tekið mínútur. En þótt tæknin hafi lækkað kostnaðinn við að senda fyrirspurnir hefur kostnaðurinn við að svara þeim ekki horfið. Hann lendir á starfsfólki ráðuneyta, embættismönnum og stjórnsýslunni allri. Er slíkur tímaþjófnaður góð nýting á tíma og skattfé almennings?
Minnisleysi þingmannsins
Maður spyr sig hvort viðkomandi þingmann skorti hreinlega skilning á gangverki framkvæmdavaldsins? Eða er hann að ganga fram með þessum hætti í von um að lama það? Ég ætla svo sem ekki að fullyrða neitt um ásetninginn. En afleiðingarnar skipta máli, óháð því hvað býr að baki.
En það er samt sem áður kaldhæðnislegt að rifja það upp að tíð Guðlaugs Þórs sem utanríkisráðherra tók hann upp á því að svörum við fyrirspurnum frá þingmönnum fylgdi sá tímafjöldi sem fór í að svara fyrirspurninni. Þá virðist þingmaðurinn hafa gert sér grein fyrir gangverki framkvæmdavaldsins.
Ný leið til að stífla og flækja málin
Það er einfaldlega hægt að búa til stíflur í kerfinu með nýjum og ódýrari hætti en áður. Mér hefur fundist ákveðið mynstur hafa teiknast upp í aðferðafræði stjórnarandstöðunnar. Þegar mál koma upp sem eru þeim ekki þóknanleg eða þau eru pólitískt ósammála láta þau sjaldan staðar numið við málefnalega gagnrýni.
Þvert á móti virðist hvert mál geta orðið tilefni til nýrrar atlögu, nýrra ásakana og nýrrar pólitískrar uppskeruhátíðar. Hjólað er í manninn en ekki boltann. Yfirleitt bætast fylgitungl þeirra við, sem taka umræðuna áfram og magna upp. Allt gert til að kokka upp hörð pólitísk átök.
Þegar í reynd er sannleikurinn kannski sá að sömu aðilar eiga erfitt með að sætta sig við orðinn hlut. Að þeirra flokkar sitja ekki lengur í stjórn. Heldur í stjórnarandstöðu. Að lýðræðislegt umboð ríkisstjórnar til að taka ákvarðanir og setja stefnu er mjög ríkt. Og að þær ákvarðanir og sú stefna er stundum ólík þeirri sem þau myndu vilja setja. Enda má vera ósammála í pólitík. Þannig virkar lýðræðið.
Það er auðvitað hið eðlilegasta mál að þegar upp kemur pólitískur ágreiningur að þá séu mál rædd og stjórnvöld krafin svara. En ekki hvað!
En það er líka ástæða til að spyrja hvort umræðan snúist alltaf um að upplýsa eða hvort markmiðið sé stundum einfaldlega að halda eldinum logandi.
Ásýnd og ábyrgð stjórnmálanna
Hvaða ásýnd gefur þetta stjórnmálunum? Og hvaða skilaboð sendum við almenningi um það hvernig stjórnmál eiga að virka? Stjórnarandstaðan á ekki að vera þægileg. Hún á ekki að vera sammála ríkisstjórninni og henni ber engin skylda til að auðvelda henni lífið. Þvert á móti á hún að spyrja erfiðra spurninga, benda á mistök, gagnrýna ákvarðanir og knýja fram úrbætur.
En það er grundvallarmunur á því að vilja hafa áhrif á stjórnarathafnir og því að vilja gera stjórnarathafnir ómögulegar.
Stjórnmál snúast ekki bara um að koma höggi á andstæðinginn. Þau snúast um að leysa verkefni samfélagsins. Ríkisstjórnir sitja ekki í tómarúmi. Á bak við hvert ráðuneyti eru verkefni sem snerta líf fólks, þjónustu við börn, heilbrigðiskerfið, innviði og atvinnulíf. Þegar stjórnsýslan er föst í endalausum varnaraðgerðum er það ekki ríkisstjórnin ein sem finnur fyrir því.
Það er almenningur.
Það er auðvelt að kalla eftir ábyrgð hjá öðrum. Erfiðara er að axla hana sjálfur. Sú krafa hlýtur að ná jafnt til stjórnar og stjórnarandstöðu.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗