Íslendingar illa búnir undir vatnsleysi

„Fólk hafði ekki áhyggjur af því að það myndi slokkna á vatni,“ segir Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi, í Dagmálum. 

„En það var samt enginn með neitt vatn,“ bætir hann við.

Í nýútkomnum bæklingi almannavarna, Verum viðbúin, er almenningi ráðlagt að eiga neyðarbirgðir til þriggja daga, meðal annars af vatni. Íslendingar virðast hins vegar eiga nokkuð í land með að tryggja eigin viðbúnað.

Kristinn vísar þar m.a. til könnunar Vörðu á hamfaravitund og viðbúnaði almennings, sem birt var í apríl. Samkvæmt henni segjast aðeins 9,1% Íslendinga eiga neyðarbirgðir af vatni til matseldar og hreinlætis, samanborið við 35,7% Finna og 32,3% Svía.

Hann bendir á að vatnsleysi geti jafnframt gert matarbirgðir gagnslitlar, enda komi þurrmatur á borð við núðlur að litlum notum ef ekkert vatn til staðar til matargerðar.

Kristinn segir mikilvægt að almenningur hugi að eigin viðbúnaði og búi sig undir að grunnþjónusta geti raskast þegar hættuástand skapast.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅