Árbæjarskóli og Hagaskóli í úrslit Skrekks

Atriðið Frelsinu fögnum frá Langholtsskóla er byggt í kringum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og veitir fullorðnum innsýn inn í það hvernig skoðunum barna, og þeim sjálfum, er oft ekki tekið alvarlega í samfélaginu. Ljósmynd/Anton Bjarni

Annað undanúrslitakvöld Skrekks, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík, fór fram í kvöld í Borgarleikhúsinu og voru atriði Árbæjarskóla og Langholtsskóla valin til þess að halda áfram í úrslitakeppnina. 

Atriðið Bestu ár ævi þinnar fjallar um þrýstinginn sem getur fylgt því að vera unglingur og finnast maður þurfa að gera allt „rétt“, og fá til þess ráð frá fullorðnu fólki sem stangast oft á.

Sannleikurinn er hins vegar sá, eins og fram kemur í lok atriðsins, að það er engin ein rétt leið til að vera unglingur eða maður sjálfur.

Atriðið Bestu ár ævi þinnar fjallar um þrýstinginn sem getur fylgt því að vera unglingur og finnast maður þurfa að gera allt „rétt“, og fá til þess ráð frá fullorðnu fólki sem stangast oft á. Ljósmynd/Anton Bjarni

Atriðið Frelsinu fögnum frá Langholtsskóla er byggt í kringum barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og veitir fullorðnum innsýn inn í það hvernig skoðunum barna, og þeim sjálfum, er oft ekki tekið alvarlega í samfélaginu.

Heimur barna leikur lykilhlutverk, þar sem frelsi og fjölbreytileiki barna er fagnað, en sjá má að reglur og athugasemdir fullorðinna spilla gleðinni og gleði barnæskunnar týnist.

Atriðin má sjá á vef UngRÚV.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅