Ók undir áhrifum á númerum af öðrum bíl
Lögregla stöðvaði akstur mannsins í Lóuhólum 17. mars og við Fannafold 15. apríl. Þá hafði lögregla afskipti af honum á bifreiðastæði við Krummahóla 29. maí. Í öll þrjú skiptin mældust kókaín og tetrahýdrókannabínól í blóði hans. Ljósmynd/Colourbox
Karlmaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að aka þrívegis undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Í einu tilvikanna ók hann jafnframt bifreið á skráningarmerkjum sem tilheyrðu öðrum bíl.
Dómurinn var kveðinn upp í gær. Maðurinn játaði brot sín skýlaust og var ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð.
Þrjú brot á innan við þremur mánuðum
Brotin voru framin í Reykjavík í mars, apríl og maí á þessu ári. Lögregla stöðvaði akstur mannsins í Lóuhólum 17. mars og við Fannafold 15. apríl. Þá hafði lögregla afskipti af honum á bifreiðastæði við Krummahóla 29. maí.
Í öll þrjú skiptin mældust kókaín og tetrahýdrókannabínól í blóði hans.
Við síðasta brotið ók maðurinn grárri Volkswagen Touareg-bifreið sem bar skráningarmerki svartrar Opel Corsa-bifreiðar. Var hann einnig sakfelldur fyrir skjalabrot vegna þess að hafa ekið bifreiðinni á röngum skráningarmerkjum í blekkingarskyni.
Áður dæmdur í fangelsi
Samkvæmt dómnum á maðurinn nokkurn sakaferil að baki, einkum vegna umferðarlagabrota og fíkniefnabrota. Hann var síðast dæmdur í tíu mánaða fangelsi árið 2025 fyrir slík brot auk brota gegn lögreglu- og vopnalögum.
Í dómnum segir að með brotunum nú hafi maðurinn í fimmta sinn innan ítrekunartíma gerst sekur um akstur undir áhrifum fíkniefna og í þriðja sinn um akstur sviptur ökurétti.
Skýlaus játning mannsins var metin honum til málsbóta við ákvörðun refsingar. Auk níu mánaða fangelsisvistar var honum gert að greiða samtals rúmlega 800 þúsund krónur í málsvarnarlaun og annan sakarkostnað.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗