Hegseth hólpinn frá embættisákæru í bili
Ákærutilraunin hefði aukið talsvert á vanda Trumps, en eftir að demókratar unnu stórsigur í þingkosningunum í síðustu viku og kjósendur höfnuðu repúblikönum með sögulegum hætti, má ætla að hann eigi fullt í fangi með þau vandræði flokksins sem fyrir eru. AFP/Gomez
Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hafa komið í veg fyrir tilraun eins repúblikana úr þeirra röðum til að ákæra varnarmálaráðherrann Pete Hegseth til embættismissis vegna Íransstríðsins.
Niðurstaðan veitir Donald Trump Bandaríkjaforseta og Hegseth nokkurn létti, en staða Hegseths hefur þótt völt eftir að repúblikanar guldu afhroð í þingkosningunum í síðustu viku.
Fulltrúadeildin samþykkti með 211 atkvæðum gegn 204 að vísa ályktuninni um ákæru á hendur Hegseth til dómsmálanefndar, en sú niðurstaða þýðir að hún verður ekki tekin til atkvæða á morgun líkt og fyrirhugað var.
Segir niðurstöðuna „ALGJÖRAN SIGUR!“
Ályktunin var lögð fram af repúblikananum Thomas Massie, gagnrýnanda Trumps, sem var eini þingmaður flokksins sem greiddi atkvæði gegn því að vísa málinu til nefndar.
Hefði ákæran verið samþykkt til þinglegrar meðferðar hefði það aukið talsvert á vanda Trumps, sem glímir nú við eftirmál þingkosninganna og þess sögulega afhroðs repúblikana þar, en leita þarf aftur til ársins 1974 og eftirmála Watergate-málsins til þess að finna viðlíka tap fyrir flokkinn.
Repúblikanar halda enn naumum meirihluta í fulltrúadeildinni fram í janúar, þegar demókratar taka við stjórn beggja deilda þingsins, en 11 demókratar voru ekki viðstaddir atkvæðagreiðsluna.
Sean Parnell, talsmaður varnarmálaráðuneytisins, fagnaði niðurstöðunni í færslu á X og kallaði hana „ALGJÖRAN SIGUR!“
„Við hlökkum til að binda enda á þessa sýndarákæru í nefndarsalnum, þar sem staðreyndirnar munu áfram ráða og hægt verður að leggja þessa truflun til hliðar.“
„Skrípaleikur og sýndarmennska“
Hegseth vísaði ákærutilrauninni á bug fyrr í dag sem „pólitísku sjónarspili“ og varði frammistöðu sína við stjórn Íransstríðsins og annarra hernaðaraðgerða í stjórnartíð Trumps.
„Þetta er skrípaleikur og sýndarmennska, og það vita allir,“ sagði hann á blaðamannafundi í Pentagon og kallaði ásakanirnar „rógburð“ og „skemmdarverk“.
Skömmu eftir sjónvarpsávarp Hegseths lýsti Trump yfir stuðningi sínum.
„Pete Hegseth fær ‚A‘ PLÚS, PLÚS, PLÚS,“ skrifaði hinn áttræði forseti á dreifimiðil sinn Truth Social.
JD Vance varaforseti lýsti einnig yfir stuðningi við varnarmálaráðherrann og sagði að hann hefði „augljóslega ekki“ framið brot sem réttlættu embættisbrotaákæru.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗