Símavandræði á Alþingi: Óæskileg hljóð heyrðust

Innlent | mbl | 10.11.2026 | 23:36

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, fer yfir málin á Alþingi.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, fer yfir málin á Alþingi. mbl.is/Eyþór

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, beindi því til þingmanna í dag að læra á símana sína eftir að tónlist eða önnur óæskileg hljóð höfðu heyrst fjórum sinnum í þingsal á 43 mínútum.

„Nú ætlar forseti að beina því til háttvirtra þingmanna að læra á símana sína,“ sagði Þórunn og benti á að ýmsa mætti kalla til aðstoðar.

„Nú kann vel að vera að meðalaldurinn sé hár hér en það er hægt að leita aðstoðar hjá starfsfólki og jafnvel börnum og barnabörnum.“

Þórunn uppskar hlátur í þingsal fyrir ábendinguna.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅