Fleiri íþróttamenn dæmdir til dauða
Að minnsta kosti sex íranskir íþróttamenn eiga yfir höfði sér aftöku eftir að hæstiréttur landsins staðfesti dauðadóma yfir þeim, að því er baráttusamtökin Human Rights for Sport vara við.
Viðvörunin kemur í kjölfar aftöku fjallgöngumannsins Ali-Sina Mostafavi 14. október og taekwondo-íþróttamannsins Siavash Jamshidi Kheirabadi fyrr í sama mánuði. Mostafavi, sem hafði klifið Everestfjall, var handtekinn í kjölfar mótmæla gegn stjórnvöldum.
Meðal þeirra sem eiga aftöku yfir höfði sér eru sundmaðurinn Ali Pishevarzadeh, knattspyrnumaðurinn Ehsan Hosseinpour og hnefaleikamaðurinn Mohammad Javad Vafaei Sani.
MMA-bardagamaðurinn Benyamin Naghdi, hestaíþróttakonan Taraneh Rahimi og klifurkonan Maryam Siri hafa einnig verið dæmd til dauða.
Skotmörk til að hræða almenning
„Íranska íþróttasamfélagið er undir gríðarlegum þrýstingi,“ sagði dr. Zohreh Abdollahkhani hjá Human Rights for Sport í samtali við The Guardian.
Samtökin, sem hafa aðsetur í Ósló, telja að þekktir íþróttamenn séu skotmörk til að hræða almenning. Þau segja að sex íþróttamenn hafi þegar verið teknir af lífi í málum sem tengjast mótmælunum í janúar eða eldri pólitískum ákærum.
Abdollahkhani sagði að ættingjar hefðu einnig orðið fyrir ofsóknum, sem gerði erfitt að ná sambandi við fjölskyldur fanganna. Í einu tilviki hefðu systir og mágur íþróttamanns verið handtekin og fylgst hefði verið með símum fjölskyldunnar.
Hún gagnrýndi einnig viðbrögð FIFA og Alþjóðaólympíunefndarinnar. FIFA sagðist vera meðvitað um áhyggjurnar, en Alþjóðaólympíunefndin sagðist hafa áfram þungar áhyggjur en skorta vald til að breyta lögum eða stjórnkerfi Írans.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
