Gervigreindarmállíkön taki upp auglýsingar
„Ég held að auglýsingaform muni halda áfram að verða meira grípandi, frumlegri og vissulega betur vafin inn í samtalsupplifunina“ í gervigreindarspjallmennum, segir Komasinski, en fyrirtæki hans, Criteo vinnur með OpenAI í 89 löndum að þróun auglýsingaherferða í gervigreindarspjallmennum. AFP
Mörg gervigreindarfyrirtæki munu á endanum neyðast til þess að taka upp auglýsingar vegna þrýstings innan gervigreindargeirans til að standa straum af gríðarlegum útgjöldum, og hafa mörg þeirra þegar opnað fyrir innreið auglýsinga inn í mállíkön sín.
Þetta er mat forstjóra netauglýsingafyrirtækisins Criteo sem ræddi við fréttastofu AFP fyrr í dag á hliðarlínu Web Summit-ráðstefnunar í Lissabon.
Á tímum sem þessum, þar sem trú fjárfesta á því að gervigreindartækni muni nokkurn tíma skila hagnaði virðist fara dvínandi, bendir forstjórinn Michael Komanski á að auglýsingar séu það viðskiptalíkan sem best henti til innleiðingar í stórum stíl um allan heim.
„Þessi auglýsingatækni er það sem gerði það mögulegt að fjármagna flestöll vefforrit sem við notum öll í dag, hvort sem það er Google, Meta eða Snapchat,“ segir hann.
Auglýsingarnar vefjist inn í samtalið
Þrýstingur innan gervigreindargeirans á að auka tekjur til að standa straum af gríðarlegum útgjöldum varð til þess að OpenAI hóf í febrúar að prófa auglýsingar í ChatGPT í Bandaríkjunum fyrir notendur ókeypis og ódýrra áskriftarleiða.
Fyrirtækið hefur síðan smám saman hafið birtingu auglýsinga um allan heim í samstarfi við Criteo.
„Ég held að auglýsingaform muni halda áfram að verða meira grípandi, frumlegri og vissulega betur vafin inn í samtalsupplifunina“ í gervigreindarspjallmennum, segir Komasinski, en fyrirtæki hans, Criteo vinnur með OpenAI í 89 löndum að þróun auglýsingaherferða í gervigreindarspjallmennum.
Komasinski sagði að um 3.600 auglýsingaaðilar hefðu prófað auglýsingaherferðir á gervigreindarforritum og að þau hefðu greint hóflega aukningu í útgjöldum sínum á ChatGPT. AFP/Kirill Kudryavtsev
3.600 farnir að auglýsa á ChatGPT
Hækkun hlutabréfa tengdra gervigreind, sem hefur lyft mörkuðum á þessu ári, bar vitni um traust fjárfesta, en bæði hlutabréfa- og skuldabréfafjárfestar hafa að undanförnu orðið varkárari þar sem verðbólga og háir vextir gera verkefnið enn kostnaðarsamara.
Komasinski sagði að um 3.600 auglýsingaaðilar hefðu prófað auglýsingaherferðir á gervigreindarforritum og að þau hefðu greint hóflega aukningu í útgjöldum sínum á ChatGPT.
Anthropic, keppinautur OpenAI, sem er við það að fara á hlutabréfamarkað, hefur hins vegar gefið það út að fyrirtækið hyggist ekki bæta auglýsingum við gervigreindartól sín vegna áhyggna af persónuvernd og til þessað gæta hagsmuna notenda sinna.
Microsoft hefur birt auglýsingar í almennri útgáfu Copilot-gervigreindarinnar frá árinu 2023, Perplexity hefur gert tilraunir með auglýsingar í Bandaríkjunum frá árinu 2024 og Google íhugar nú einnig að bæta við auglýsingum í Gemini.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
