Friðarviðræðurnar uppbyggilegar og efnismiklar

Volodimír Selenskí sat fyrir svörum blaðamanna í Kaupmannahöfn í dag.

Volodimír Selenskí sat fyrir svörum blaðamanna í Kaupmannahöfn í dag. AFP

Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði viðræður Rússlands og Úkraínu í Abú Dabí í dag hafa verið uppbyggilegar og efnismiklar.

Meðal umræðuefna dagsins voru mannúðarmál og öryggistryggingar ríkjanna beggja.

Selenskí er ekki viðstaddur viðræðurnar en erindrekar Úkraínu gerðu honum grein fyrir gangi mála á meðan hann átti fundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna í Danmörku. 

Ánægður í Kaupmannahöfn

Bandaríkjamenn hafa milligöngu um viðræðurnar og Selenskí kvaðst vera ánægður með nýja nálgun bandarískra erindreka á viðræðurnar. 

„Ég sé breytingar. Ég er mjög ánægður með það sem ég heyri. Við sjáum hvað hægt er að gera,“ sagði Selenskí á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn.

Jafnframt sagði Selenskí að unnið væri að umfangsmiklum fangaskiptum á milli Rússlands og Úkraínu og að bandarískir embættismenn myndu ferðast til Rússlands til að ræða frekar útfærslu á skiptunum. 

„Ég vil skipta á þúsund fyrir þúsund, jafnvel fimmtán hundruð fyrir fimmtán hundruð.“

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅