Hryðjuverkamaður ákærður vegna Fairford-málsins
Einn hinna ákærðu situr þegar í fangelsi í New York vegna ákæru þess efnis að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk í sýnagógu, og hefur verið ákærður fyrir að hafa skipulagt átján hryðjuverk í Evrópu til viðbótar. AFP/Ben Stansall
Bandaríska dómsmálaráðuneytið tilkynnti í dag um ákærur á hendur þremur mönnum, sem það lýsti sem „írönskum útsendurum“, þar á meðal einum sem þegar situr í fangelsi, vegna aðildar þeirra að meintu hryðjuverkasamsæri við breska herflugvöllinn RAF Fairford.
Einn þeirra situr þegar í fangelsi í New York vegna ákæru þess efnis að hann hafi ætlað að sprengja upp sýnagógu, og hefur verið ákærður fyrir að hafa skipulagt átján hryðjuverk í Evrópu til viðbótar.
Mohammad Baqer Saad Dawood al-Saadi, Mohsen Mohajeri og Mohammad Ali al-Hassani eru sakaðir um að hafa aðstoðað við að skipuleggja og stýra atvikinu sem átti sér stað í september við herstöðina, sem bandaríski herinn hefur notað í aðgerðum sínum gegn Íran.
Lögregla var kölluð að Fairford-svæðinu í suðvesturhluta Englands eftir að bóndi á svæðinu tilkynnti að hann hefði séð hóp manna með nokkra hvíta sendibíla stunda „grunsamlegt“ athæfi.
Nær tugur hryðjuverkaákæra
Í bandarísku ákæruskjali kemur fram að Al-Hassani, 35 ára íraskur ríkisborgari, hafi skipað ónafngreindum einstaklingum að aka sendibílunum að herstöðinni, en í sumum þeirra voru eldsneytistunnur.
Þar er því haldið fram að hann hafi áður greitt hópnum fyrir að kaupa málmhluti sem nota mætti sem sprengjubrot og fyrir að dulbúa ökutækin sem eldsneytisflutningabíla.
Al-Saadi, 32 ára, sem er með bæði íranskan og íraskan ríkisborgararétt og situr þegar í fangelsi í New York vegna ofangreindra hryðjuverkaákæra, er sakaður um að hafa komið dulkóðuðum skilaboðum til Al-Hassani og Mohajeri, 48 ára íransks ríkisborgara, til að samhæfa aðgerðir í aðdraganda samsærisins.
Nokkrum dögum eftir atvikið kallaði Bandaríkjaher allar B-1-sprengjuflugvélar sínar burt frá herstöðinni.
„Hver sá sem skipuleggur hryðjuverk gegn herstöð þar sem bandarískir hermenn hafast við verður sóttur til saka af bandarískum stjórnvöldum,“ sagði Todd Blanche dómsmálaráðherra í yfirlýsingu fyrr í dag.
Mennirnir þrír voru ákærðir í átta liðum, en í ákærunni eru þeir sakaðir um aðild að nokkrum öðrum samsærum til stuðnings Byltingarvarðarsveitum Írans og hinum Íranshlynnta hópi Kataeb Hezbollah.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗