Styður Hegseth en kallar Massie aumingja: „A PLÚS PLÚS PLÚS“

Trump hefur lýst yfir stuðningi við Hegseth, gefið honum „A PLÚS PLÚS“ og kallað Massie „ALGJÖRAN AUMINGJA“. AFP/ANDREW CABALLERO-REYNOLDS

Innan skamms greiðir fulltrúadeildin atkvæði um hvort halda eigi áfram með tillögu um embættisákæru á hendur Pete Hegseth varnarmálaráðherra, sem Thomas Massie, fráfarandi þingmaður Repúblikanaflokksins, lagði fram.

Á blaðamannafundi varði Hegseth feril sinn, einkum varðandi Íran, hélt því fram að aðgerðir hans hefðu verið réttar og vísaði ákærutilrauninni á bug sem „skrípaleik“

Um hernaðaraðgerðir Bandaríkjanna sagði Hegseth að „hver og ein þeirra hefði verið lögmæt aðgerð“. Trump hefur lýst yfir stuðningi við Hegseth, gefið honum „A PLÚS PLÚS“ og kallað Massie „ALGJÖRAN AUMINGJA“.

Atkvæðagreiðsla innan skamms

JD Vance varaforseti hefur sagt ásakanirnar „fáránlegar“, en Chuck Schumer, leiðtogi minnihluta demókrata í öldungadeildinni, sagði Hegseth „algjörlega óhæfan til að stýra“ ráðuneyti sínu.

Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar og repúblikani, hefur lýst yfir trú á að tilraunir hans til að stöðva framgang ákærutillögunnar muni bera árangur.

Ted Cruz, öldungadeildarþingmaður repúblikana, hafði hins vegar áður sagt hið gagnstæða og haldið því fram að „afar líklegt“ væri að fulltrúadeildin myndi samþykkja embættisákæru.

Fyrsta vísbendingin um hvert málið stefnir fæst með atkvæðagreiðslu um málsmeðferð sem fyrirhuguð er klukkan 17:30 að austurstrandartíma, eða 22:30 að íslenskum tíma.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅