Friðarviðræðurnar uppbyggilegar og efnismiklar
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti sagði viðræður Rússlands og Úkraínu í Abú Dabí í dag hafa verið uppbyggilegar og efnismiklar.
Meðal umræðuefna dagsins voru mannúðarmál og öryggistryggingar ríkjanna beggja.
Selenskí er ekki viðstaddur viðræðurnar en erindrekar Úkraínu gerðu honum grein fyrir gangi mála á meðan hann átti fundi með forsætisráðherrum Norðurlandanna í Danmörku.
Ánægður í Kaupmannahöfn
Bandaríkjamenn hafa milligöngu um viðræðurnar og Selenskí kvaðst vera ánægður með nýja nálgun bandarískra erindreka á viðræðurnar.
„Ég sé breytingar. Ég er mjög ánægður með það sem ég heyri. Við sjáum hvað hægt er að gera,“ sagði Selenskí á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn.
Jafnframt sagði Selenskí að unnið væri að umfangsmiklum fangaskiptum á milli Rússlands og Úkraínu og að bandarískir embættismenn myndu ferðast til Rússlands til að ræða frekar útfærslu á skiptunum.
„Ég vil skipta á þúsund fyrir þúsund, jafnvel fimmtán hundruð fyrir fimmtán hundruð.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗