Lloris Karius gæti leyst Neuer af hólmi

Þýski knattspyrnumarkvörðurinn Loris Karius gæti leyst Manuel Neuer af hólmi hjá Bayern München næsta sumar.

Það er Sky í Þýskalandi sem greinir frá þessu en Karius, sem er 33 ára gamall, er samningsbundinn Schalke í þýsku 1. deildinni.

Neuer, sem er orðinn fertugur, íhugar það alvarlega að leggja hanskana á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu.

Bernd Leno, markvörður Fulham, hefur einnig verið nefndur sem hugsanlegur arftaki Neuers en hann er 34 ára gamall.

Jonas Urbig, varamarkvörður Bayern München, er 23 ára gamall og vilja forráðamenn Þýskalandsmeistararanna fá inn reynslumikinn markvörð með honum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅