Börn blekkt til að taka ólöglega stera
Dæmi eru um að foreldrar og þjálfarar gefi börnum ólöglega stera. Ljósmynd/Lyfjastofnun Bandaríkjanna
Talið er að minnsta kosti tíu milljónir barna um allan heim verði fyrir áhrifum af lyfjamisnotkun, samkvæmt rannsókn ARD sem nær yfir sex ár, meira en 50 lönd og 25 íþróttagreinar.
Niðurstöður 44 rannsókna í 15 löndum gefa þetta til kynna. ARD leggur áherslu á að engin rannsókn á heimsvísu sé til og að ekki sé hægt að slá fram nákvæmri tölu.
Rannsakendur komust að því að þjálfarar, læknar og foreldrar gáfu börnum ólögleg efni, stundum dulbúin sem vítamín.
„Þeim eru gefnar töflur sem þeim er sagt að séu vítamín en í raun eru þetta ólögleg lyf, svo sem vefaukandi sterar,“ sagði rannsakandinn Paulo David við ARD.
Heimildaþáttaröðin, sem telur sex þætti, Doping Top Secret: Children, verður gefin út á þýsku og ensku föstudaginn 13. nóvember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗