Afskipti þingmanns af niðurrifi gamals húss taka á sig ótrúlegar myndir - Hótanir, innrás í einkalífið og lögreglukæra

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 22:30

Signe Wenneberg. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Þingmaður á danska þinginu hefur verið kærður til lögreglu eftir afskipti sín af niðurrifi gamals íbúðarhúss. Þingmaðurinn, sem raunar er kona, Signe Wenneberg hefur birt myndir af húsinu og færslur um það á samfélagsmiðlum. Wenneberg er afar áhugasöm um varðveislu gamalla húsa, ekki síst út frá umhverfisverndarsjónarmiðum, og hefur í þeim efnum það mottó að eigi að rífa gömul hús þá verði að krefjast skýringa á því. Hafa eigendur hússins sagt þingmanninn hafa haldið fram röngum upplýsingum um niðurrifið og hafa kært Wenneberg til lögreglu. Sömuleiðis hefur fyrirtækið sem annaðist niðurrifið sagt það rangt hjá henni að hægt hafi verið að bjarga húsinu. Segir forstjóri fyrirtækisins að því hafi borist fjöldi hótana frá fylgjendum Wenneberg og að sömuleiðis hafi hróp verið gerð að starfsmönnum þess og þingmaðurinn hafi birt myndir af þeim.

Signe Wenneberg er þingmaður fyrir flokkinn Alternativet og var kjörin á þing í kosningunum sem fram fóru í mars síðastliðnum. Flokkurinn á ekki sæti í ríkisstjórn en ver hana vantrausti á þingi. Flokkurinn er vinstra megin við miðju og er skilgreindur sem græningjaflokkur.

Fram kemur í ítarlegri umfjöllun TV2 um þetta niðurrifsmál að húsið sé í Klampenborg-hverfinu í sveitarfélaginu Gentofte sem er beint norður af Kaupmannahafnarborg.

Í morgun birti Wenneberg nýja færslu um húsið en annar eiganda þess segir að í færslunni sé þingmaðurinn með sömu röngu upplýsingarnar og í eldri færslu. 

Kæra

Eigendur hússins eru hjón og létu þau rífa það og byggja síðan nýtt á lóðinni. Fyrir helgi birti Wenneberg færslu á samfélagsmiðlum með myndum af báðum húsum og gagnrýndi niðurrifið á því gamla. Sagði hún að hægt hefði verið að endurnýja það og varðveita eða að minnsta kosti nýta efni úr því gamla fyrir það nýja.

Hjónin Jannie Jelkvist og Jeppe Hansen eru umræddir eigendur og búa í nýja húsinu. Þau voru ekki sátt við að þingmaður væri að birta myndir á samfélagsmiðlum af heimili þeirra. Sýndi Jelkvist fréttamönnum TV2 ýmis gögn sem sýndu fram á afar bágt ástand gamla hússins. Það var byggt á þriðja áratug síðustu aldar á stólpum sem voru orðnir rotnir. Vegna ástands hússins var heldur ekki hægt að færa húseigendatryggingu yfir á þau. Var þar vísað til þess að húsið hefði skekkst og að tilteknar hafi verið í ástandsskýrslu ýmsar skemmdir á húsinu, þar af sumar mjög alvarlegar. 

Fullyrti Jelkvist að í nýja húsinu hafi verið nýtt ýmislegt efni úr gamla húsinu.

Wenneberg hafði gagnrýnt hjónin árið 2024 fyrir niðurrifið og Jelkvist segist þá hafa rætt við hana í síma en hún hafi ekki sýnt því áhuga að hlusta á hennar sjónarmið.

Hafa hjónin nú kært þingmanninn til lögreglu fyrir að hafa farið inn á einkalóð þeirra til að taka myndir til birtingar á samfélagsmiðlum. Þingmaðurinn segist aðeins hafa tekið myndir utan lóðarinnar og hefur beðið hjónin afsökunar á færslunni sem hún birti fyrir helgi. Þeirri færslu var síðan eytt.

Stefna

Þingmaðurinn birti hins vegar nýja færslu í morgun og Jelkvist segir það hreinlega óskiljanlegt að þar sé haldið fram sömu röngu upplýsingunum og í færslunni frá því fyrir helgi.

Í nýju færslunni segir þingmaðurinn að gamla húsið hafi verið í góðu ástandi og því verið vel hægt að varðveita það.

Fulltrúar fyrirtækisins sem annaðist niðurrifið segja það hins vegar rangt og benda á eins og hjónin hafa gert að húsið var orðið skakkt og þar að auki verið reist á stólpum sem voru orðnir rotnir. Grunnur hússins hafi verið það illa farinn að ekki hafi verið hægt að bjarga því.

Forstjóri fyrirtækisins, Mads Nilsson, segir að lögð hafi verið áhersla á að endurnýta eins mikið af efni úr gamla húsinu og mögulegt var, gagnstætt því sem Wenneberg hafi haldið fram. Segir hann að í kjölfar færslna Wenneberg hafi starfsmönnum fyrirtækisins verið hótað og gerð hróp að þeim en þingmaðurinn er með 174.000 fylgjendur. Segir hann að þingmaðurinn hafi tekið myndir af fleiri niðurrifsverkefnum sem fyrirtækið hafi annast og hafi birt myndir af starfsmönnum þess.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅