Skiptu með sér 194 milljónum króna
Miðahafarnir, sem hrepptu sjö milljónir hvor, áttu báðir erfitt með að trúa fréttunum þegar starfsmenn happdrættisins höfðu samband og héldu í fyrstu að um gabb væri að ræða. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Tveir heppnir miðahafar unnu sjö skattfrjálsar milljónir króna hvor þegar dregið var í Happdrætti Háskóla Íslands í dag, að því er fram kemur í tilkynningu.
Báðir áttu erfitt með að trúa fréttunum þegar starfsmenn happdrættisins höfðu samband og héldu í fyrstu að um gabb væri að ræða.
Þriðji heppni miðaeigandinn vann 6,3 milljónir króna. Á númerið hans féll 700 þúsund króna vinningur en þar sem hann átti nífaldan miða margfaldaðist vinningurinn sem því nemur.
Númerið hefur verið í fjölskyldunni frá því fyrir 1940 og gengið í arf milli ættingja, og því má ætla að ólíklegt sé að þessu lukkunúmeri fjölskyldunnar verði sleppt í bráð.
Alls hlutu rúmlega 4.000 miðaeigendur vinning í útdrætti dagsins og skiptu þeir með sér rúmlega 194 milljónum króna.
Milljónaveltan fellur í desember
Milljónaveltan féll ekki að þessu sinni og verður því 90 milljónir króna í desember. Þar sem hún verður að falla innan ársins verður þá eingöngu dregið úr seldum miðum.
Það er því tryggt að einn heppinn miðaeigandi fær 90 skattfrjálsar milljónir króna í jólabónus frá Happdrætti Háskóla Íslands.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗