Stórfelld fasteignasvik á Tenerife – Fólk missti stóran hluta sparifjár síns
Spænska lögreglan hefur handtekið þrjá einstaklinga vegna gruns um umfangsmikil fasteignasvik á Tenerife, þar sem 28 einstaklingar eru taldir hafa verið sviknir um samtals tæplega 115 þúsund evrur, jafnvirði um 16 milljóna íslenskra króna.
Sum fórnarlambanna eru sögð hafa misst stóran hluta sparifjár síns. Tenerife er sem kunnugt er afar vinsæll áfangastaður Íslendinga.
Samkvæmt spænsku fréttastofunni Europa Press hóf lögregla rannsókn á málinu eftir að henni bárust fjölmargar kærur vegna meintra fasteignasvika. Grunsemdirnar beindust að fasteignasölu í Santa Cruz de Tenerife, höfuðborg eyjunnar.
Tóku við peningunum og slitu öllu sambandi
Að sögn lögreglu nýtti aðalmaðurinn sem grunaður er um svikin sér að hann rak fasteignasölu sem virtist starfa með lögmætum hætti. Þar bauð hann íbúðir, hús og lóðir til sölu, bæði á skrifstofu fyrirtækisins og á vefsíðu þess.
Þegar áhugasamir kaupendur fundu eign sem þeir vildu kaupa var gengið frá kaupsamningi og þeir látnir greiða fyrirfram til að tryggja sér eignina.
En þegar peningarnir höfðu borist á reikning mannsins breyttist allt.
Samkvæmt lögreglu er maðurinn grunaður um að hafa slitið öllum samskiptum við kaupendurna og reynt að fela slóð peninganna með því að millifæra þá til annarra einstaklinga eða inn á bankareikninga erlendis.
Kaupendurnir sátu eftir án fasteignanna sem þeir höfðu greitt fyrir og í sumum tilvikum höfðu þeir tapað stórum hluta sparifjár síns.
Fórnarlömbin tóku höndum saman
Svikin eru talin hafa staðið yfir um nokkurt skeið. Við rannsókn málsins kom í ljós að kærur höfðu borist lögreglu allt frá árinu 2024, á mismunandi lögreglustöðvum á Tenerife.
Fórnarlömbin stofnuðu að lokum sérstakan umræðuvettvang þar sem þau gátu borið saman bækur sínar, deilt upplýsingum og haldið sambandi sín á milli.
Við rannsóknina tókst lögreglu að tengja saman 20 kærur og bera kennsl á alls 28 einstaklinga sem talið er að hafi orðið fyrir svikunum.
Rannsóknin beindist að fjórum einstaklingum. Auk eiganda fasteignasölunnar voru þrír aðrir grunaðir um að hafa tekið við peningum sem hann millifærði eftir að hafa fengið greiðslur frá kaupendunum.
Lögreglan skipulagði sérstaka aðgerð til að hafa hendur í hári þeirra og voru þrír handteknir. Sá fjórði er áfram til rannsóknar.
Aðalmaðurinn, eigandi fasteignasölunnar, hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗