Vilja ekki selja þrátt fyrir mikinn áhuga innanlands
Tottenham ætlar ekki að selja Conor Gallagher í janúar þrátt fyrir áhuga nokkurra félaga í ensku úrvalsdeildinni.
Samkvæmt Football Insider vill Roberto De Zerbi, stjóri Tottenham, halda miðjumanninum og telur hann kappann enn vera mikilvægan hlekk í leikmannahópnum, þrátt fyrir að hann hafi ekki verið í mjög stóru hlutverki.
Crystal Palace, Everton, Leeds og Aston Villa hafa öll sýnt Gallagher, sem lék áður með Atletico Madrid og Chelsea, áhuga.
Gallagher gekk í raðir Tottenham fyrir tæpu ári frá Atletico. Hann er samningsbundinn Tottenham til 2031.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗