Óheimilt að þiggja kynfrumur frá nafnlausum

Lagt er til að notkun kynfrumna úr sama einstaklingi verði takmörkuð við að börn frá sama kynfrumugjafa verði í einungis tveimur fjölskyldum að hámarki, og að óheimilt verði að þiggja kynfrumur frá nafnlausum sæðisgjafa. Samsett mynd/Ljósmynd/Colourbox/mbl.is/Kristinn

Heilbrigðisráðherra telur það brýnt að takmarka það hve margar kynfrumur úr sama einstaklingi eru notaðar í tæknifrjóvgun hér á landi, og hefur lagt fram drög að breytingum á gildandi lögum þar sem meðal annars er kveðið á um að börn úr kynfrumum sama einstaklings verði börn í einungis tveimur fjölskyldum að hámarki.

Drögin fela í sér heildarendurskoðum á lögum um tæknifrjóvgun og notkun kynfruma og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna, nr. 55/1996.

Frekari breytingar sem drögin kveða á um eru að óheimilt verði að nota kynfrumur eða fósturvísi frá gjafa sem óskar nafnleyndar, í ljósi réttinda barna og fólks sem getin eru með gjafafrumum.

Byggir einkum á smæð þjóðarinnar

Í kynningartexta breytinganna segir að þær séu lagðar til í ljósi sjónarmiða um gæði og öryggi tæknifrjóvgunarþjónustu, jafnréttis, réttar þeirra barna sem getin eru með gjafafrumum til að þekkja uppruna sinn og einföldunar regluverks.

Meðal annars er lagt til að notkun kynfrumna úr sama einstaklingi verði takmörkuð við að börn frá sama kynfrumugjafa verði í einungis tveimur fjölskyldum að hámarki.

Röksemdirnar að baki takmörkun á útbreiðslu kynfruma einstaklinga eru þau að með því sé unnt að draga úr hættu á of nánum skyldleika, og byggir tveggja fjölskyldna hámarkið einkum á smæð þjóðarinnar.

Óheimilt verður einnig, nái drögin í gegn að ganga, að nota kynfrumur eða fósturvísi frá gjafa sem óskar nafnleyndar. Ljósmynd/Colourbox

Óheimilt að þiggja kynfrumur frá nafnlausum

Óheimilt verður einnig, nái drögin í gegn að ganga, að nota kynfrumur eða fósturvísi frá gjafa sem óskar nafnleyndar. Sú breyting er að sögn ráðherra lögð til í ljósi réttinda barna og fólks sem getin eru með gjafafrumum og rétt þeirri á að fá upplýsingar um líffræðilegan uppruna sinn.

Það sé ekki síst mikilvægt í ljósi þess að sífellt verða þekktir fleiri erfðasjúkdómar sem þörf er á að rekja meðal skyldra, en slíkt tilvik kom upp síðasta vetur þar sem í ljós koma að sæðisgjafi sem gat nærri 200 börn víða um Evrópu bar sjaldgæft gen sem eykur mjög líkur á krabbameini.

Þá er lagt til að endurskoðuð verði krafa laganna um að sambúð eða hjúskapur sé skilyrði fyrir því að einstaklingar geti staðið saman að tæknifrjóvgun í þeim tilgangi að búa til barn.

Það leggur ráðherra til með vísan til jafnréttis og til að koma til móts við breytta samfélagsgerð.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅