Íslendingaliðið missti niður forskotið í Meistaradeildinni
Inter Mílanó missti niður forskot sitt gegn Manchester City þegar liðin mættust í 4. umferð Meistaradeildar kvenna í fótbolta á Ítalíu í kvöld.
Leiknum lauk með öruggum sigri Manchester City, 4:1, en Elisa Bartoli kom Inter yfir á 24. mínútu.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir varði mark Inter og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lék fyrri hálfleikinn með ítalska liðinu sem er með 4 stig í 11. sætinu.
Þá vann Bayern München nauman sigur gegn París SG í Frakklandi, 2:1, en Glódís Perla Viggósdóttir sat allan tímann á varamannabekk Bayern í leiknum.
Bayern er í öðru sætinu með 8 stig líkt og Chelsea, stigi minna en Spánarmeistarar Barcelona sem eru með 9 stig og eiga leik til góða á Bayern og Chelsea.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗