Þværðu hárið á þér rétt?
Fyrirsæta hjá franska merkinu Isabel Marant á tískuvikunni fyrr í haust. Hárið er upp á tíu og lítur út eins og lítið hafi verið haft fyrir greiðslunni. Simon Wohlfahrt/AFP
Hvert er leyndarmálið á bak við fallegt og náttúrulegt hár? Franskar konur ættu að geta svarað því en þær hafa lengi verið þekktar fyrir áreynslulausan glæsileika og það á ekki síst við um hárið. Það virðist alltaf falla fullkomlega, án þess að vera of mikið greitt eða stíliserað. Hár franskra kvenna er gjarnan örlítið úfið, með náttúrulegri hreyfingu og sjarma.
Franska hárgreiðslukonan Daphné Narcy segir að leyndarmálið felist meðal annars í því hvernig hárið er þvegið. Hún bendir á að margar konur skemmi hárið óafvitandi í sturtunni með röngum aðferðum.
„Þegar hárið er blautt er það hvað viðkvæmast. Ef þú þværð það of hratt, nuddar það of harkalega eða notar of heitt vatn getur það valdið því að hárið brotnar og verður úfið,“ segir Narcy í samtali við breska tískutímaritið Vogue. Hún deilir nokkrum einföldum ráðum sem geta skipt sköpum fyrir heilbrigði og útlit hársins.
Einbeittu þér að hársverðinum
Ein algengustu mistökin við hárþvott eru að einbeita sér að hárinu sjálfu í stað hársvarðarins. Margar konur nudda endana saman en gleyma rótunum þar sem fita og óhreinindi safnast fyrir.
Narcy segir að heilbrigður hársvörður sé undirstaða fallegs hárs. Með því að hreinsa hársvörðinn vel verður hárið léttara og ferskara við ræturnar þegar það þornar.
Ekki nota of heitt vatn
Það getur verið freistandi að fara í sjóðheita sturtu, sérstaklega yfir vetrartímann, en það er ekki endilega það besta fyrir hárið.
Of heitt vatn getur haft neikvæð áhrif á ysta lag hársins, valdið rakatapi og gert það mattara. Hárlitur getur einnig dofnað hraðar. Þá getur mikill hiti þurrkað hársvörðinn og valdið ertingu.
Narcy mælir með því að nota volgt vatn og segir það ágæta þumalputtareglu að vatnið eigi að vera þægilegt við úlnliðinn án þess að finnast heitt.
Nuddaðu í stað þess að skrúbba
Þegar sjampóið er borið í hárið ætti að nota fingurgómana og nudda hársvörðinn varlega með litlum hringlaga hreyfingum.
Markmiðið er að örva og hreinsa hársvörðinn án þess að beita of miklum krafti. Narcy segir að hárþvotturinn eigi frekar að minna á notalegt nudd en harkalegan skrúbb.
Þvoðu hárið tvisvar
Narcy er talsmaður þess að sjampóera hárið tvisvar í hverjum þvotti. Hún segir þó mikilvægt að nota ekki of mikið sjampó og mælir með magni á stærð við valhnetu í hvort skipti.
Of mikið sjampó getur skilið eftir leifar í hársverðinum, þyngt hárið og jafnvel valdið ertingu. Það getur einnig orðið til þess að hárið virðist óhreint fyrr. Þannig getur myndast vítahringur þar sem hárið er þvegið oftar en þörf er á.
Farðu varlega með endana
Það er mikilvægt þegar þú þværð á þér hárið að nudda endana ekki harkalega saman. Narcy ráðleggur að renna lófunum varlega niður eftir hárinu, alveg út í enda, án þess að beita miklum núningi. Þegar sjampóið er síðan skolað úr hárinu rennur froðan niður eftir endunum og hjálpar til við að hreinsa þá.
Með þessari aðferð er minni hætta á að hárið flækist eða brotni. Hárlengdirnar halda einnig betur raka og verða mýkri og sléttari þegar þær þorna.
Leyndarmálið á bak við fallegt hár virðist því ekki endilega felast í dýrum hárvörum eða flóknum hárgreiðsluaðferðum heldur einföldum venjum sem byrja strax í sturtunni.
内容来自 Mbl.is - Tíska,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
