Þvertekur fyrir ofbeldi í hjónabandinu
Leikarinn Dax Shepard segist ekki beita eiginkonu sína, leikkonuna Kristen Bell, andlegu ofbeldi. Hann segir að enn og aftur sé umræða í gangi að hann sé stjórnsamur og ofbeldisfullur.
Shepard opnaði sig um málið í hlaðvarpsþætti sínum að því fram kemur á vef Vulture. Sagði hann að enn eina ferðina sé í gangi umræða í fjölmiðlum um að hann sé hræðileg manneskja. Á dögunum sagði Bell í gamansömum tón að Shepard væri daðra við hana þegar hann byrjar að hrósa öðru fólki. Leikarinn vildi meina að þetta olli misskilningi enda gæti slíkur forleikur virkað eins og móðgun í flestum hjónaböndum.
Í kjölfarið hefur umræðan um söguna verið furðuleg að mati Shepard. Flestir líta nú á hann sem stjórnsaman og ofbeldisfullan. „Mér finnst þetta mjög móðgandi gagnvart konunni minni,“ bætti hann við. „Hvað? Situr hún heima með dætrum sínum tveimur og er fyrirmynd að einhverju ofbeldissambandi? Þetta er virkilega móðgandi fyrir hana,“ sagði hann.
Eiga tvær dætur
Bell og Shepard kynntust í matarboði árið 2007 og fljótlega á eftir kviknaði ástareldurinn. Parið trúlofaði sig þremur árum síðar og gekk í hjónaband þegar giftingar samkynhneigðra voru gerðar löglegar í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum árið 2013. Hjónin eiga tvær dætur, Lincoln og Delta.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/9/52/952176.jpg)
