Líklegastur til þess að taka við United

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino. AFP/CHRIS CODUTO

Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino þykir líklegastur til þess að taka við þjálfun enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United.

Það er Sky Sports sem greinir frá þessu en Pochettino, sem er 54 ára gamall, er þjálfari bandaríska karlalandsliðsins í dag.

Hann er sjálfur opinn fyrir því að taka við stjórnartaumunum á Old Trafford að því er fram kemur í frétt Sky Sports.

The Athletic greindi frá því í dag að Michael Carrick yrði sagt upp störfum hjá United á næstu dögum og félagið hefði nú þegar hafið leit að eftirmanni hans.

Eddie Howe, fyrrverandi stjóri Newcastle og Bournemouth, og Julian Nagelsmann, fyrrverandi landsliðsþjálfari Þýskalands og Bayern München, hafa einnig verið orðaðir við starfið.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅