Þegar Trölli stal jólunum: Skyggst bakvið tjöldin
Haraldur Ari Stefánsson, Björgvin Franz Gíslason og Karen Sif Kamgan í hlutverkum sínum í fjölskyldusöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýndur var í Borgarleikhúsinu um helgina við góðar viðtökur. mbl.is/Eyþór
Ljósmyndari Morgunblaðsins fékk að líta inn á lokaæfingu fjölskyldusýningarinnar Þegar Trölli stal jólunum sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu um helgina.
Verkið er í leikstjórn Vals Freys Einarssonar og er byggt á klassískri sögu eftir Dr. Seuss. Með titilhlutverkið fer Björgvin Franz Gíslason sem skartar heilmiklu gervi til að umbreytast í græna tröllið sem hatar jólin svo heitt og innilega að hann ákveður að stela þeim.
Theodór Elí Kristjánsson, Hlynur Axel Bjarkason og Iðunn Eldey Stefánsdóttir voru kát baksviðs fyrir lokarennslið á sýningunni. mbl.is/Eyþór
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗










