Tryggvi fagnaði gegn Martin
Tryggvi Snær Hlinason átti góðan leik fyrir Bilbao þegar liðið tók á móti Alba Berlín í Íslendingaslag í G-riðli Meistaradeildarinnar í körfubolta á Spáni í kvöld.
Leiknum lauk með naumum sigri Bilbao, 83:75. Tryggvi skoraði 6 stig, tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu á þeim fimmtán mínútum sem hann lék.
Martin Hermannsson skoraði 11 stig fyrir Alba Berlín, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu á þeim 19 mínútum sem hann lék.
Bilbao er í efsta sæti riðilsins með 6 stig, líkt og Alba Berlín sem er í öðru sætinu, en liðið sem hafnar í efsta sætinu fer áfram í 16-liða úrslitin á meðan liðin í 2.-3. sæti fara í umspil.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗