Kanadískur hjúkrunarfræðingur til rannsóknar – Sökuð um að bjóða sjúklingi kynlíf eftir blóðþrýstingsmælingu
Pressan
Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 21:30
Lori Chern. Mynd: Facebook
Kanadískur hjúkrunarfræðingur er til rannsóknar vegna ásakana um kynferðislega misnotkun í starfi. Hún er sögð hafa mælt blóðþrýsting karlmanns sem leitaði til hennar vegna læknisskoðunar, og síðan boðið honum að stunda með sér kynlíf og sagt það myndu bæta heilsu hans.
Konan heitir Lori Chern og starfar sem hjúkrunarfræðingur í Kamloops í Bresku-Kólumbíu, Kanada. Kvörtun barst vegna skoðunar sem hún framkvæmdi á heimili sínu í ágúst. Maðurinn hafði fengið ábendingu frá lyfjafræðingi um að leita til stofu Cherns, RN Collaborate. Hann hafði samband við hana til að panta læknisskoðun og fá útfyllt gögn sem hann þurfti að skila til kanadísku alríkislögreglunnar, RCMP.
Samkvæmt kvörtuninni tók viðtalið óvænta stefnu þegar Chern bauð manninum að setjast í sófa á heimili hennar. Hún er sögð hafa sest þétt upp að honum og strokið honum um handlegginn á meðan hún mældi blóðþrýsting hans.
Að mælingunni lokinni á hún að hafa hrósað honum fyrir líkamsbyggingu og sagt að hjartsláttur hans og blóðþrýstingur væru eins og hjá 18 ára manni. Hún er sögð hafa spurt ítarlega um kynlíf hans og sagt að kynlíf væri mikilvægt fyrir karlmenn til að halda jafnvægi og góðri heilsu.
Því næst er hún sögð hafa boðið honum að sofa hjá sér. Þegar hann afþakkaði á hún að hafa sagt honum að hann gæti haft samband við hana utan vinnutíma ef hann skipti um skoðun.
Maðurinn afhenti eftirlitsstofnun hjúkrunarfræðinga í Bresku Kólumbíu skjáskot af textaskilaboðum sem hann sagði hafa farið á milli þeirra. Hann hélt því einnig fram að Chern hefði aldrei lokið við læknisgögnin sem voru tilefni tímans. Hún hefði sagt að hún gæti ekki skilað þeim þar sem skráningarnúmer hennar hjá heilbrigðiskerfinu virkaði ekki.
RN Collaborate er samkvæmt LinkedIn-síðu Cherns heilbrigðis- og heilsuræktarþjónusta sem beinist einkum að körlum yfir fertugu. Á Facebook-síðu sinni birtir hún meðal annars myndbönd með leiðbeiningum um heilbrigðismál. Í einu þeirra sýnir hún körlum hvernig þeir eigi að sprauta sig með testósteróni.
Eftirlitsstofnun hjúkrunarfræðinga hefur hafið rannsókn á málinu og sett takmarkanir á starfsheimildir Cherns á meðan rannsóknin stendur yfir.
Sjá nánar um málið á Daily Mail.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗