Ramsay fækkaði fötum eftir sextugsafmælið
Gordon Ramsay ásamt eiginkonu sinni, Tönu, og dótturinni Tilly. Feðginin eiga sama afmælisdag og urðu sextug og 25 ára hinn 8. nóvember. Samsett mynd/Skjáskot Instagram
Matreiðslumaðurinn og sjónvarpsstjarnan Gordon Ramsay fagnaði sextugsafmæli sínu 8. nóvember. Daginn eftir birti hann mynd af sér berum að ofan á Instagram og þakkaði fylgjendum sínum fyrir afmæliskveðjurnar.
„Takk öll fyrir frábæru afmæliskveðjurnar! Dagur tvö sem sextugur,“ skrifaði Ramsay við myndina, þar sem hann klæðist æfingastuttbuxum einum saman.
Ramsay hefur lengi lagt stund á hjólreiðar, sund og hlaup og tekið þátt í Ironman-þríþrautum. Afmælismyndin bendir til þess að hann hyggist halda sínu striki á sjötugsaldri.
Feðginin eiga sama afmælisdag
Ramsay á afmælisdag með dóttur sinni, Matildu, sem er jafnan kölluð Tilly. Hún varð 25 ára sama dag og faðir hennar varð sextugur.
Í afmæliskveðju til hennar á Instagram sagði Ramsay það draum föður að deila svo sérstökum degi með dóttur sinni. Hann sagðist vart eiga orð yfir því hversu stoltur hann væri af henni en virtist eiga örlítið erfiðara með að meðtaka eigin aldur.
„Eigðu frábæran 25 ára afmælisdag. Ég trúi ekki að ég sé orðinn sextugur,“ skrifaði hann.
Með kveðjunni fylgdi meðal annars mynd af Ramsay kyssa dóttur sína á höfuðið við matarborðið og önnur þar sem hann grettir sig á bak við hana í myndatöku.
Ramsay og eiginkona hans, Tana, gengu í hjónaband árið 1996 og eiga sex börn.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗