Læknir gagnrýnir áform Kópavogs – „Ekki sjálfsagt að senda þann reikning á opinbera heilsugæslu í formi aukins álags og minni tíma fyrir aðra sjúklinga“

Kristinn H. Guðnason

Þriðjudaginn 10. nóvember 2026 21:00

Indriði bendir á að læknar hafi nóg annað að gera og að veikt fólk eigi að vera heima að jafna sig en ekki eltast við pappíra.

Indriði Einar Reynisson, læknir á Heilsugæslunni í Borgarnesi, gagnrýnir áform Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra í Kópavogi um að krefja starfsfólk um veikindavottorð. Hann segir málið snúast bæði um tíma lækna og veiks fólks sem ætti að vera heima að jafna sig.

„„Á ÉG að votta það?“ var yfirskrift greinar sem ég skrifaði í Læknablaðið fyrir tveimur árum. Fyrr sama ár hafði Facebook-færsla mín um vottorðafarganið ratað í fréttir,“ segir Indiriði í færslu á samfélagsmiðlum. En hann hefur áður greint frá því fargani vottorða sem læknar eyða tíma sínum í að skrifa, tíma sem gæti betur verið varið í annað. „Þá var ég meðal annars að velta fyrir mér hvers vegna læknir þyrfti að skrifa leikfimisvottorð fyrir barn sem var í gipsi. Greinilega sá enginn gipsið nema læknirinn,“ segir hann.

Einnig hafði hann endurnýjað sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið 10 ár í röð. Hann hefur einnig fyllt út kafaravottorð, þjálfaravottorð, skólaferðalagsvottorð, skiptinámsvottorð. Sum algerlega tilgangslaus. En síðan hann skrifaði greinina, árið 2024, hafi ýmislegt áunnist.

„Tilvísanaskylda í sjúkraþjálfun hefur verið afnumin. Tilvísun frá heilsugæslu er ekki lengur forsenda þess að börn fái gjaldfrjálsa þjónustu sérgreinalækna. Regluleg endurnýjun örorkumats hefur verið felld niður hjá þeim sem fengu varanlegan rétt í nýju kerfi TR. Þetta eru skynsamlegar breytingar sem spara fólki fyrirhöfn og losa tíma í heilbrigðiskerfinu. Enn er þó nóg eftir,“ segir Indriði.

Stingi í stúf

Þess vegna stingi í stúf að heyra um áætlanir Kópavogsbæjar um auknar kröfur um læknisvottorð hjá starfsfólki með tíðar skammtímavistir. Á meðan reynt sé að fækka óþarfa erindum í heilsugæslunni eigi nú að bæta nýjum við.

„Ég skil vel að vinnuveitendur þurfi að fylgja eftir veikindafjarvistum. En hvað á ég sem heimilislæknir að staðfesta þegar einstaklingur segist hafa legið heima með gubbupest í gær?“ segir Indriði. „Í mörgum slíkum tilvikum byggist vottorðið á sömu frásögn og vinnuveitandinn hefur þegar fengið. Hún verður ekkert sannari við að ég skrifi undir hana.“

Sjá einnig:

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu - „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Læknisfræðilegt mat á starfsgetu, langvinnum veikindum og þörf fyrir aðlögun í starfi eigi vitaskuld rétt á sér. En vilji vinnuveitandi sérstaka læknisþjónustu til að fylgja eftir fjarvistum starfsfólks þurfi hann að skipuleggja hana og fjármagna. „Það er ekki sjálfsagt að senda þann reikning á opinbera heilsugæslu í formi aukins álags og minni tíma fyrir aðra sjúklinga,“ segir Indriði.

Tími lækna og veikra

Þá spyr hann einnig hvar veikindafjarvistirnar eru mestar og hvers vegna. Velta þurfi því fyrir sér hvernig mönnunin er, álgagið og starfsumhverfið. Fleiri undirskriftir lækna svara því ekki.

„Þetta snýst heldur ekki bara um tíma lækna. Þetta er líka tími og fyrirhöfn veikra einstaklinga sem þurfa að eltast við pappír þegar þeir ættu að geta jafnað sig heima. Fólk á að leita læknis þegar það þarf læknisþjónustu. Það ætti ekki að þurfa að gera það eingöngu til að uppfylla pappírskröfu vinnuveitanda,“ segir hann að lokum og endar færsluna á sömu orðum og árið 2024: „Við höfum nóg annað að gera!“

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅