Veitir Seðlabankanum aðgang að fyrirgreiðslum í evrum
Höfuðstöðvar Seðlabanka Evrópu, sem samþykkt hefur beiðni Seðlabanka Íslands um aðgang að endurhverfum viðskiptum, í Frankfurt í Þýskalandi. AFP
Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur samþykkt beiðni Seðlabanka Íslands um aðgang að endurhverfum viðskiptum eða EUREP-fyrirgreiðslunni (Eurosystem Repo Facility for Central Banks), að því er fram kemur í tilkynningu frá bankanum.
Hún veitir bankanum aðgang að lausafé í evrum til skamms tíma og mun því til þess fallin að auka viðnámsþrótt og sveigjanleika við stýringu gjaldeyrisforða Seðlabankans.
Styrkir bankann í fjármálaáföllum
„Með aðgangi að EUREP getur Seðlabankinn fengið evrur að láni gegn veði í hæfum verðbréfum í evrum,“ segir í tilkynningunni.
Fyrirgreiðslan styrki viðbúnað Seðlabankans vegna fjármálaáfalla með því að tryggja bankanum skjótan aðgang að lausafé í evrum eftir þörfum og lágmarki jafnframt mótaðilaáhættu.
Aðgangurinn auki þannig viðnámsþrótt þjóðarbúsins gagnvart áföllum á fjármálamörkuðum.
Markmið að draga úr áhættu vegna lausafjárvanda í evrum
Seðlabanki Evrópu hefur gert EUREP að varanlegri fyrirgreiðslu sem gerir seðlabönkum utan evrusvæðisins kleift að fá evrur að láni gegn veði í hæfum og traustum verðbréfum í evrum.
Markmið fyrirgreiðslunnar er að draga úr áhættu vegna lausafjárvanda í evrum utan evrusvæðisins með því að tryggja erlendum seðlabönkum skjótan, samræmdan og víðtækan aðgang að lausafjárfyrirgreiðslu í evrum. Fyrirgreiðslan styður jafnframt við eðlilega virkni fjármálamarkaða þegar á reynir.
Hámarkslánsfjárhæð til seðlabanka utan evrusvæðisins er 50 ma. evra, en raunverulegt svigrúm til lántöku ræðst af framboði og verðmæti hæfra veðtrygginga.
Markmið fyrirgreiðslunnar er að draga úr áhættu vegna lausafjárvanda í evrum utan evrusvæðisins með því að tryggja erlendum seðlabönkum skjótan, samræmdan og víðtækan aðgang að lausafjárfyrirgreiðslu í evrum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
