Frábær endasprettur lærisveina Erlings dugði ekki

Erlingur Birgir Richardsson.

Erlingur Birgir Richardsson. mbl.is/Anton Brink

Erlingur Birgir Richardsson og lærisveinar hans í þýska B-deildarfélaginu Minden eru úr leik í þýsku bikarkeppninni í handbolta.

Minden heimsótti Hagen í 16-liða úrslitum keppninnar í kvöld en leiknum lauk með eins marks sigri Hagen, 33:22.

Hagen leiddi með sex mörkum, 27:21, þegar rúmlega tíu mínútur voru til leiksloka en Minden tókst að jafna metin í 32:32 þegar tæp mínúta var eftir.

Hagen skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins og er því komið áfram í átta liða úrslitin. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅