Geta greitt unglingum fyrir að fljúga drónum
„Það getur verið bara einhver unglingur sem fær bara millifærðan pening á PayPal-reikninginn sinn og veit ekkert meir,“ segir Kristinn Árni Lár Hróbjartsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi, en hann er gestur Dagmála í dag.
Hann bendir á að fjandsamlegir aðilar geti fengið fólk til þess að fljúga drónum og valda truflunum gegn tiltölulega lágri greiðslu, jafnvel um hundrað evrum, í gegnum samskiptaforrit á borð við Telegram.
„Það geta verið einhverjir annarlegir hvatar þar að baki,“ segir Kristinn.
Geta greitt unglingum fyrir að fljúga drónum
Hann segir að þetta geti gert yfirvöldum erfiðara fyrir að átta sig á því hver standi í raun að baki drónaflugi, enda þurfi sá sem framkvæmir verkið ekki að vita hver hafi skipulagt það eða í hvaða tilgangi.
Kristinn ræðir einnig í Dagmálum niðurstöður skýrslu Vörðu og Cornell-háskóla um drónaógnir og gloppur í íslensku viðbragðskerfi.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗